Sagan


Árið 1922 markaði þáttaskil í sögu gleriðnaðar á Íslandi. Þá kom til landsins ungur maður að nafni Ludvig Carl Christian Adolph Storr, í daglegu tali nefndur Ludvig Storr. Hann setti á fót verslun sem verslaði með gler og spegla sem hann flutti inn tilbúið frá ýmsum fyrirtækjum í Evrópu.
 
 
Þegar fyrirtækið var tveggja ára flutti það um set að Laugavegi 11 og var þar næsta áratuginn. Árið 1937 byggði hann nýtt húsnæði að Klapparstíg 16 og flutti fyrirtækið þangað sama ár ennfremur fékk fyrirtækið nýtt nafn, Glerslípun og Speglagerð hf. sem það heitir enn þann dag í dag.
 
 
 
Til þess að koma faglegum fótum undir fyrirtækið voru ráðnir til þess glerslípunarmeistarar frá Þýskalandi og Belgíu og ruddu þeir brautina fyrir iðngreinina hér á landi. Allflestir þeir sem numið hafa iðngreinina hér á landi hafa lært hjá Glerslípun og Speglagerð ehf.
 
Powered by Smartwebber